6/2/14 10:36
Aðalfundur Golfklúbbs Vatnsleysustrandar var haldinn mánudaginn 27. janúar. Á dagskrá voru venjuleg aðlfundarstörf. Samþykkt var að halda árgjöldum óbreyttum fyrir árið 2014. Æfingaboltar og golfkennsla verða áfram innifalin í árgjaldinu. Aðalfundur veitti stjórn heimild til þess að hefja framkvæmdir við áhalda- og æfingaaðstöðu. Sitjandi stjórn gaf áfram kost á sér fyrir utan Jón Mar Guðmundsson og eru honum þökkuð vel unnin störf. Nýir aðilar í stjórn voru kosnir þeir Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Sigurður J. Hallbjörnsson.
Ársreikningur félagsins 2013 ber nokkurn keim af blautu sumri 2013. Tekjur á milli ára lækka um 7% sem verður samt að teljast nokkuð góður árangur, miðað við það að félags- og vallargjöld lækkuðu um 11,3%. Með aðhaldi í rekstri og útsjónarsemi vallarstjóra og stjórnarmanna tókst að ljúka árinu 2013 nokkurn veginn á núlli. EBITDA var jákvæð um rúmar 2,0 milljónir. Rekstrarhalli var 0,5 milljónir.
Stjórn Golfklúbbs Vatnsleysustrandar er skipuð:
| Andrés Guðmundsson | formaður |
| Jón Ingi Baldvinsson | varaformaður |
| Jón Páll Sigurjónsson | gjaldkeri |
| Stefán Sveinsson | formaður vallarnefndar |
| Hallberg Svavarsson | formaður mótanefndar |
| Guðbjörn Ólafsson | formaður forgjafanefndar |
| Magnús Árnason | ritari |
| Hilmar Egill Sveinbjörnsson |
varamaður |
| Sigurður J. Hallbjörnsson
Þorvarður Bessi Einarsson |
varamaður
varamaður |
